Leave nothing but footprints, take nothing but memories

Hvenær verða flúðir að fossi? Urriða"foss" er eins og Ægissíðufoss í Ytri-Rangá eiginlega ekkert annað en flúðir.  Þessi fossaþráhyggja fólks sem hefur nú verið afhjúpað sem umhverfissóðar er undarleg.

Mér finnst alltaf góð þessi ábending sem ég sá á ferð erlendis:  Leave nothing but footprints, take nothing but memories.  Kannski getur einhver þýtt þetta þannig að vel fari.


mbl.is Fossinn sem gleymdist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og á hverju öðru var von?

"Vel gekk að lenda þotu..."  Á hverju áttu menn von?  Vitleysingarnir á RUV tala um nauðlendingu.

Næst spyrja þeir um hvað margir hafi fengið áfallahjálp.  Arrrg. Fréttaflutningur af svona atvikum er almenn afburðavitlaus.  Um miðjan júní lenti hér vél frá LOT pólska flugfélaginu á leið til Chicago.  Þeir þurftu að drepa á öðrum hreyflinum.  En af því að enginn farþeginn var með símanúmer á íslenskum fjölmiðlum komst þetta aldrei í fjölmiðla.  Enginn fékk áfallahjálp, en allir fengu gistingu og svo far vestur um haf daginn eftir með öðrum flugvélum.


mbl.is Lendingin gekk vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingvellir fyrir hverja?

Mér hefur lengi fundist það markmið Þingvallanefndar og þjóðgarðsvarðar síðan Heimir Steinsson var þarna að það mætti helst enginn vera að þvælast á Þingvöllum.  Og ekkert gera þar.  Niðurstaðan er svo sú að þangað koma fáir íslendingar, aðallega túristar í rútum sem eru teymdir innan afgirtra göngustíga.  Þingvellir hafa litla skírskotun hjá íslendingum í dag.
mbl.is Þyrlur sveima yfir þjóðgarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Usual suspects"...

Í þessari mótmælastöðu mátti sjá það lið sem hefur fyrir venju að mæta í slíkar athafnir.  Segir meira um málefnið en flest annað.
mbl.is Ráðherra viðurkenni mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáránleg fyrirsögn

Fleygt úr landi?  Í fyrsta lagi kom maðurinn fyrst til Ítalíu, þangað hafði hann vegabréfsáritun.  Í gegnum Schengen bullið (aðild Íslands að því er skilgetið afkvæmi Halldórs Ásgrímssonar) komst hann hingað og sækir um sem "pólitískur flóttamaður".  Í öðru lagi er kona hans hér ólöglega, hún á að vera í Svíþjóð.  Kenýa er engan veginn einsleitt land, þar tókst að mynda þjóðstjórn, sem er gott og þýðir vonandi að eldri deilur verða leystar.  Tal um einhverja "dauðalista" er ómarktækt.

Rugluvæll í sjálfskipuðum "do-gooders" er ömurlegur.


mbl.is Fjölskyldu fleygt úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með Hamrahlíð?

Áratugum saman hafa listaspírurnar farið í Hamrahlíð.  Má ekki bara senda þær þangað áfram?


mbl.is Listamenntaskóli 2010?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsmunum neytenda enn fórnað

Enn gengur Sjálfstæðisflokkurinn í það að halda uppi úreltu landbúnaðarkerfi.  Og áfram skulu íslendingar búa við hæsta verð á landbúnaðarvörum í heimi.  Og þið skuluð bara kyngja því kaffihúsakverúlantarnir ykkar!
mbl.is Breytingar á matvælalögum í þágu bænda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aulagangur blaðamanna

Það virðist vera orðin regla en ekki undantekning að blaðamönnum takist að misskilja og mistúlka alla hluti og ekki síst að uppnefna fólk.  Flugstjóri TF-SIF var Sigurður Heiðar Wium, ekki Torben Wium (mig minnir að sigmaðurinn heiti Torben). 
mbl.is Nauðlending Sifjar samkvæmt reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Hvumpinn

Höfundur

Hvumpinn
Hvumpinn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband